Creditinfo Ísland hefur boðið uppá óháðan samanburð á ávöxtun verðbréfasjóða á vefsíðunni www.sjodir.is frá árinu 2000. Á síðunni er borin saman ávöxtun verðbréfsjóða sem eru starfræktir eða í umboðssölu innlendra rekstraraðila.
Allar upplýsingar á þessari síðu eru byggðar á gögnum frá vörsluaðilum sjóðanna. Ávöxtun er byggð á gengistölum frá þessum aðilum og er þeirra útreikningur á gengi ekki endurskoðaður. Gert er ráð fyrir að þeir sjóðir sem skráðir eru hérlendis og starfa skv. lögum nr. 30/2003, uppfylli þau skilyrði sem þar eru sett um miðlun upplýsinga og rekstur verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða. Sama á við um þá sjóði sem skráðir eru á erlendum mörkuðum og starfa samkvæmt þarlendum lögum.
Ávöxtun sjóða og félaga er reiknuð út frá skráðu kaupgengi í lok hvers mánaðar. Ávöxtun allra sjóða er birt í grunnmynt sjóðanna en hægt er að skoða ávöxtun í öðrum gjaldmiðlum með því að velja aðra mynt í fellilista á síðunni Sjóðir. Við umreiknun ávöxtunar í aðra mynt er notast við kaupgengi í gengisskrániningu gjaldmiðla hjá Seðlabanka Íslands.Nánari upplýsingar um fjárfestingar sjóðanna er að finna á aðalsíðu sjóða sem birtast ef smellt er á nafn sjóðanna. Sjá Sjóðir. Útboðslýsingar eru aðgengilegar á heimasíðum sjóðanna hjá söluaðilum.
Creditinfo Ísland ber enga ábyrgð á fjárfestingum út frá upplýsingum á þessari síðu og því ættu fjárfestar alltaf að setja sig í samband við ráðgjafa hjá söluaðilum sjóðanna áður en fjárfest er.
Creditinfo Ísland á höfundarrétt á öllum upplýsingum sem birtar eru á þessari síðu. Öll endurmiðlun þeirra er óheimil án skriflegs samþykkis Creditinfo Ísland.