Breytingar á löggjöf
Þann 1. júlí 2003 öðluðust gildi ný lög um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði, nr. 30/2003. Með gildistöku laganna hafa orðið miklar breytingar á starfsheimildum og starfsskilyrðum verðbréfasjóða. Fyrri lög tóku einungis til verðbréfasjóða en ekki fjárfestingarsjóða en vegna tilskipunar frá Evrópusambandinu þurfti að uppfæra þau til samræmis við þar til gerðar lagareglur. Samkvæmt þeim ákvæðum skulu verðbréfasjóðir ekki lengur starfræktir í formi hlutafélaga heldur sem hluti af rekstrarfélagi. Í dag eru allir sjóðir sem birtir eru á www.sjodir.is reknir af rekstrarfélögum í stað þess að vera sjálfstæðir lögaðilar og reknir af bönkum, verðbréfafyrirtækjum eða sparisjóðum. Rekstrarfélög allra sjóða sem birtir eru á www.sjodir.is hafa fengið starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu. Þeir söluaðilar sem hér er vísað til sjá um markaðssetningu sjóðanna skv. útboðslýsingum rekstrarfélaganna, sjá Söluaðilar.

Í 51. gr., sbr. 52. gr. laga nr. 30/2003 kemur fram að í auglýsingum og annarri kynningarstarfsemi verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða skuli þess gætt að fram komi réttar og nákvæmar upplýsingar um starfsemi þessara aðila. Þess skuli gætt að skýrt komi fram hvort sjóður sé verðbréfasjóður eða fjárfestingarsjóður. Jafnframt kemur fram að í auglýsingum og annarri kynningarstarfsemi skuli vísað í útboðslýsingu eða útdrátt úr útboðslýsingu og hvar nálgast megi þau gögn.

Munur er á fjárfestingarsjóðum og verðbréfasjóðum. Fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir en verðbréfasjóðir skv. lögum nr. 30/2003. Að auki mega fjárfestingarsjóðir eingöngu markaðssetja sig hérlendis en verðbréfasjóðir mega markaðssetja sig innan EES. Vakin er athygli á því að rýmri heimildir fjárfestingarsjóða til fjárfestinga í samanburði við heimildir verðbréfasjóða hefur í för með sér að fjárfestingarsjóður er áhættusamari fjárfesting heldur en verðbréfasjóður. Lögin heimila fjárfestingarsjóðum að fjárfesta án takmarkana í óskráðum verðbréfum og peningamarkaðsskjölum, heimildir þeirra til fjárfestinga í verðbréfum útgefnum af sama aðila er rýmri en gildir um verðbréfasjóði. Þá hafa fjárfestingarsjóðir heimildir til lántöku og skortsölu sem verðbréfasjóðir hafa ekki og þeir hafa rýmri heimildir til fjárfestinga í öðrum sjóðum en verðbréfasjóðir. Þrátt fyrir rýmri heimildir fjárfestingarsjóða til fjárfestinga en verðbréfasjóða eru flestir þeir fjárfestingarsjóðir sem hér eru birtir eingöngu að nýta sér þær heimildir að hluta.

Breytingar á www.sjodir.is
Í kjölfar breytinga á löggjöf sem fjallað er um hér að ofan hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar. Tekið er fram hvort sjóður er verðbréfasjóður eða fjárfestingarsjóður. Ekki er gerður greinarmunur á verðbréfasjóðum hérlendis og erlendis, þ.e. svokölluðum UCITS sjóðum þar sem þeir hlíta sambærilegri löggjöf. Fjárfestingarsjóðir samkvæmt Evrópulöggjöf kallast jafnframt NON-UCITS sjóðir. Þeir sjóðir sem hvorki flokkast sem verðbréfasjóðir né fjárfestingarsjóðir eru flokkaðir sem "Aðrir sjóðir- NON UCITS". Erlendir sjóðir sem hafa markaðssetningarleyfi á Íslandi eru nú flokkaðir með innlendum sjóðum, en voru áður í sértöflu.Ávöxtun sjóða og félaga er reiknuð út frá skráðu kaupgengi í lok hvers mánaðar. Ávöxtun allra sjóða er birt í grunnmynt sjóðanna en hægt er að skoða ávöxtun í öðrum gjaldmiðlum með því að velja aðra mynt í fellilista á síðunni Sjóðir. Við umreiknun ávöxtunar í aðra mynt er notast við kaupgengi í gengisskrániningu gjaldmiðla hjá Seðlabanka Íslands. Þátttakendur í þessum samanburði okkar á ávöxtun sjóða eru nú kynntir sem söluaðilar en voru áður verðbréfafyrirtæki.

Ný löggjöf um verðbréfasjóði og fjárfestingarasjóði hefur ekki áhrif á rekstur séreignarsjóða
Creditinfo Ísland er með það markmið að birta raunhæfan samanburð á frjálsum lífeyrissparnaði á einum stað og auðvelda þannig almenningi val á sparnaðarleiðum. Enn sem komið er, er ekki hægt að nálgast þær á www.sjodir.is. Það er von okkar slíkur samanburður verði í boði á næstunni og að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í því verkefni okkar í framtíðinni.


Öll endurmiðlun gagna er óheimil án skriflegs samþykkis Creditinfo Ísland.