Áhættustuðull hvers sjóðs er ákvarðaður útfrá staðalfráviki ávöxtunar á seinustu 12 mánuðum og er einungis ætlað að varpa ljósi á sveiflur í ávöxtun sjóðanna. Áhættustuðlinum er því ekki ætlað að vera forsenda ákvörðunar um fjárfestingu, enda þarf hann ekki að vera mælikvarði á áhættu fjárfestinga í sjálfu sér. Fjárfestar eru hvattir til þess að kynna sér samsetningu sjóða, á heimasíðum söluaðila, og nýta sér ráðgjöf þeirra við mat á fjárfestingakostum m.t.t. áhættu og ávöxtunar.
Staðalfrávik ávöxtunar myndar áhættustuðul hvers sjóðs og er reiknað með eftirfrarandi formúlu:
Staðalfrávik ávöxtunar = STDEV(ávöxtunargildi seinustu 12 mánaða)*SQRT(12)
Hver sjóður fær áhættutstuðul samkvæmt töflunni hér fyrir neðan:
Staðalfrávik ávöxtunar Áhættuflokkur
0,00% - 0,99% 1
1,00% - 2,99% 2
3,00% - 4,99% 3
5,00% - 9,99% 4
10,00% - 14,99% 5
15,00% - 19,99% 6
20,00%+ 7